|
|
12.07.2007 10:53:41 / nybui
Pókermót verður haldið á laugardag. Kvöldið verður álíka og í
fyrra, en byrjað verður kl 18.
Til að tilmelda sig hringið í mig svo ég viti hvað við verðum
margir
sími 6955946
»
16.06.2007 14:25:47 / nybui
Það er eitthvað við þessi orðatiltæki sem ég ekki skil. Ég veit
svo sem ekkertu um það sjálfur hvort það sé lítill íslenskur
orðaforði í mínum haus eða hvort þeir sem notast mikið við
flókið orðalag séu að tala einhveja íslensku sem er
úreld.
Túngumál þróast nefnilega með árunum, það þýðir ekki að spila gamla
plötu í geisla spilaranum eins og einn íslensku kennari sagði
mér.
Ég tel mið tala og skilja íslensku, þó kemur að því að ég skil
ekki hvað sumir eru að reyna að seigja við mig, þetta kemur oft upp
þegar orð séu notuð sem ég ekki þekki.
Orðið eldhúspappír er ágætisdæmi, það er orð sem ég efast ekki
um að allir íslenskumælandi menn (konur eru líka menn) kunni og
viti hvað er. Svo bað mig ákveðin aðilli um að rétta mér "fei" eða
hvarni sem það er skrifað. Ég áhvað að gera smá könnun á netinu á
orðinu fei, skrifað á mismunandi vegu:
Fei: Það er margt sem hefnur skammstöfunina FEI en eina sem ég
fann fyrir utan skammstafanir á orðinu fei var nafn á
kínverskum söngvara.
Fey: er 449 manna bær í vestur Sviss
-þetta er líka nafn á 90's poppsöngkonu frá Mexikó.
-Þetta orð er einnig mikið notað meðal homma, það að tala um að
einhver sé fey þá er hann kvennlegur hommi.
-Sjónvarpsþáttur síndur á árunum '75-'76 lifði þó ekki lengur
vegna óvelgengni.
-og fullt af öðrum nöfnum.
Fej, Feyj, Feij: fann ég ekki á skiljanlegu túngumáli
Ekker af þessum orðu höfðu eitthvað að gera með
eldhúspappír.
Svo eru það þessir sem nota mikið setningar eins og "þú reinir
eins og rjúpa að rembast við staur."
Ég er með nokkra góða sem mér finnst fulkomlega
skiljanlegir:
"Sólin er ekki farin þó það rign"
"Allar dúfur hafa étið sígarettustubb"
"Eingin kemur þurr inn úr rigningunni"
"Stóll er til að sitja á, borð er til að sitja við"
"Sá sem hæstur er verður fyrst blautur í rigningu"
"Báturinn sekkur ef á hann kemur gat"
"Nóttin er löng og dagurinn stuttur"
Jæja seigið mér hvað hvorð þið skiljið þetta ekki, hver er
merkinig á bak við setningarnar??
»
31.05.2007 14:58:35 / nybui
Prófin kláruðust á þriðjudaginn og ég (AKA J-honey, lesið
djonhey) ásamt Kristjáni (AKA Hans, the German 80's porn star)
fórum og fengum okkur öl í tilefni prófloka.
Við höfðum safnað andlitshárum á meðan prófunum stóð og áður en
farið var í bæinn rökuðum við okkur á eftirfarandi vígalegan
hátt:
Nú tekur bara við, þriggja vikna kúrs svo kallaður en þar er
markmið að gera eitthvað verklegt, ásamt skírslugerð. Hugsjónin á
bak við 3-vikna kúrsin er í raun að notfæra sér þekkingu vetrarins
til að hanna eitthvað nothæft.
Þeir sem hafa áhuga á að vita hvað ég er að fara að hanna skulu
lesa næstu greinaskil, en þeir sem ekki nenna að lesa það bendi ég
þeim á að hoppa yfir næstu greinaskil.
Ég ásamt einum öðrum, (Peter) er að hanna tæki sem kallast í
daglegu máli Maximum Power Point Tracker, (MPPT). Í einföldu máli
sagt þá er þetta tæki sem tengist sólarrafhlöðu og eykur nýtni orku
á sólarrafhlöðunni. Þar af leiðandi fær notandinn sem mest út úr
sólarrafhlöðunni sinni. Þetta verkefni er ekkert "kidstöff", því þó
svo að prófin séu búinn þá er mikið að gera hjá mér næstu 3
vikurnar.
Ég og Peter munum hanna og byggja tækið hönnunin er þó komin vel af
stað.
En nóg um það. Eins og flesir sem kannast við það að vera í
prúfum, þá kannast þeir líka við þær stundir sem maður finnur sér
allt annað að gera en að læra, flugan á veggnum verður ansi
athyglisverð. Ég gerði myndband daginn fyrir síðasta prófið mitt,
myndbandið "The Running Hand", ég smellti því inná YouTube.com til
að geta deilt því með ykkur.
Spurning um að halda gera aðra stuttmynd um hina hlaupandi hönd,
bæta einhverjum söguþráð inní.
Þar til næst hafið það gott.
»
22.05.2007 08:06:41 / nybui
Ef til vill veita einhverjir að því að ég er í miðjum prófum,
reyndar er fyrsta prófið hjá mér á morgun.
Prófalesturinn er búinn að vera einmannalegur að mestu leiti, en ég
hef varðveitt mest megnis tíma míns í Kaupmannahafnar
Bókasafninu.
Ég á til að leyfa andlitshárum mínum að vaxa yfir próftíma,
þessi dagana reynir Edda að muna hvernig ég leit út ný rakaður.
Mynd af mér eins og ástandið er.
Svo er bara spurning um hvar þetta endi, það er komin tillaga
með myndarlegu og karlmanslegu yfirvara skeggi, tignalegu bartarnir
voru líka flottir í fyrra. Hver man ekki eftir bartmann 
Held það sé kominn tími til að taka upp bók og fara að lesa, ef
einhver er með góða hugmynd um lokaútgáfu á rakstur þá endilega
kommenta hér að neðan. Planið er að fara allavegana 1 kvöld út
eftir próf með flott (eða asnalegt) skegg. Ég man þó samt hve
anslalega mér leið í fyrra með bartmanninn.
»
14.05.2007 21:27:57 / nybui
Það er án efa laungu kominn tími á nýja færslu hjá mér, en mín
afsökun er að það er búið að vera mikið að gera hjá mér þessa
önnina. Þetta verður bara ekkert auðveldara þetta nám.
Próflesturinn er kominn á fullt og hægt er að finna mig alla
tíma sólahrignsins í Svarta Demantnum, (bókasafninu).
Án efa er mér farið að kvíða pínu fyrir prófin en það er alltaf
þessi pressa að falla. Mér er hugsað til góðu dagana í grunnskóla
og framhaldsskóla, þar hafði ég ekki miklar áhyggjur af prófun enda
var svo sem ekki mikið í húfi. Þó reynir maður að gera sitt besta
það er víst ekki hægt að gera betur en það.
Við skötuhjúinn reiknum með að koma á klakann eitthvað í kringum
25. juni, þannig að efeinhver bíður sig fram til að blása í 17.
juni lúðurinn fyrir mig þá er honum velkomið að vera svo vænn.
Ég og mín heitelskaða Edda fórum í heimsókn til Lalla og Louisu
fyrir rúmri viku, við fengum æðislegt verður, eins og má sjá á
myndinni fyrir neðan, ég ver að upphala myndum úr þeirri ferð á
flickrið mitt, en linkinn er hægt að finna hér til
hliðar.
Mín sætar er laungu farinn uppí rúm, ég held ég skríði undir hjá
henni, það eru landir dagar framundan og veitir ekki af að hvíla
sig.
Góða nótt þið sem hafið ekkert að gera í kvöld og góðan daginn
þið sem nennið ekki að gera það sem þið eigið að vera að gera
aggúrat núna.
»
08.03.2007 14:49:38 / nybui
Það er tvennt sem stendur uppúr ef ég lít yfir
síðustu viku.
Ég og Edda skelltum okkur á kaffihús í síðustu viku, ég fékk mér
einn sá svakalegasta hamborgara sem leit út eins og hamborgari
þökk sér tannstönglinum sem hélt honum saman.
Eftir að ég hafði lokið (ham)borgarastyrjöld tókum við í nokkur
spil, eða þar til eitt þeirra datt í gólfið.
Til að reyna að finna spillið hallaði ég mér til hliðar og kíkti
undir borðið. Svo vildi óheppilega til að ég beigði kollinn eing að
kerti á næsta borði. Ég reisti mig við en fann þá svakalega skrítna
lykt, einkennileg brunalykt. Kannski kom lyktin úr eldhúsinu, við
sátum nú hliðiá því. En svo tók ég eftir reyk mökk leggjast
yfir andlitið mitt, þá varð mér það ljóst sem ljós í myrkri.
Það kveiknaði í hárinu á mér inná kaffihúsi um daginn gott fólk en
ég er heill að heilsu... ...og geði.
Ég stórefa að þetta atvik hafi farið framhjá neimum allavegana ekki
lyktin. Ég barði mig að sjálfsögðu í hausinn til að reyna að
slökkva eldinn, en það var um seinan, toppurinn var farinn.

Svo er það hitt...
Ég og Edda keyptum okku nýjan síma, Edda fékk sér Nokia
6280, ég keypti mér
SonyEricson SE k800i, en það er einmitt síminn sem James Bond
er með í nýjustu myndinni, þanng að það má seigja að ég er eins og
hann núna.
Það er MSN í símanum sem er frítt út árið 2007 þannig að þið ættuð
að vera óhædd við að senda mér skilaboð, ég mun ekki þurfa að borga
fyrir skilaboðið sem þið sendið mér og ef þið eruð í tölvu á MSN að
senda mér skilaboð þá er það líka frítt fyrir ykkur.
»
12.02.2007 13:03:45 / nybui
Í nót deildi
ég súrefni og líkamsgasi með tvem góðum félögum, þetta voru
kunnuglegar aðstæður sem vakti
endurminningu okkar um lélega svefnaðstöðu okkar sem pjakka á
sundmótum. Lalli lá í öðrum hluta sófans hrjótandi meðan
kobbi kiptist sem firskur í sínum helming, það tekur eflaust
á að koma þessum líkama hans í ró á kvöldin. Edda og Saga
vonu inní herbergi liggjandi uppí stóra rúmminu undir
draumalakinu og tvíbreiðu sænginni. Ég sjálfur lá í
hermannabedda sem fendgin var í láni hjá Hall og Þóru, hann
var mjúkur og alls ekki sem verstur, en það vantaði þó annan
heitan líkama hliðiná mér sem er vanur að kúra sér
þéttingsfast að mér meðan ég svíf inní draumalandið.
Liggjandi í mirkrinu horfandi á loftið rifjaði ég upp
daginn...
Ég vaknaði einn inní stofunni, Lalli var farinn á námskeiðið og mér
heyrist stelpurnar eitthvað vera farnar að rumska inn í herbergi.
Sunnudagur er og skal alltaf vera letidagur hjá mér, þessi dagur er
ekkert öðruvísi en 1260 sunnudagar se ég hef átt um æfina.
Tanbursti, vatn, tannkrem, bursta, vatn, skola, spíta, sófi,
tölva, sjónvarp, fjarstíring, lífið á sunnudegi er gott, ég hef
komið mér fyrir og er ekki að fara fet(meter) næstu
klukkutímana.
Ég opnaði PhotoShop og lagaði nokrrar myndir sem taknar höfðu
verið deginum áður, en þær er hægt að sjá á flicrinu okkar
Eddu.

Lalli átti að vera búinn eitthvað í kringum 1600, ég hringdi í
kobba og tjáði hann mér að þeir Leifi væru að leggja af stað frá
Gautaborg til danmerkur og myndu koma tæpt í 1600 í bæinn. Nú var
ekkert ennað að gera nema að hanga og liggja í leti.
Ég hitti Kobba og Leifa fyrir utan Burger King, Rådhuspladsen,
tekist var í hendur og skipst á heilsum. Lalli var á ennþá á
námskeðinum, en hliðiná því var Baresso Café, tilvalð þótti að fara
þangað til að komast úr kuldanum og fá sér heita hresingu meðan
beðið var eftir að Lalli kláraði á námskeðinu.
Kínverskur matur var svo borðaður kl 1730, en áður en við þurftum
að skila Leifa út á flugvöll, ég fékk að keira enda eini ratandi
maður um götur borgarinnar.
Um kvöldið fórum við í billjard, en á heimeiðinni vorum við elt af
3 mönnum sem án efa voru í mafíunni. Við rendum að hlaupa en ég
dróst alltaf meira og meira aftur úr, mafíósarnir voru komnir með
fingurgómana í jakkan minn. Þegar ég þorði svo að líta til baka
voru þeir farnir. Ég þarf að fara í felur, ég settist í tröppurnar
hjá kirkjunni á Istegade með hettuna á hasnum, ég reyndi að hylja
sem mestu af andliti mínu. Það lá sprautunál hliðiná mér, löng
nálinn hafði eflaust farið á kaf í einn af mörgum dópustum
Kaupmannahafnar. Þetta er mitt nýja heimilli hér á ég heima...
...ég var sofnaður mér dreymdi flótta í alla nótt.
»
02.02.2007 08:26:44 / nybui
Ég er kominn uppí skóla á bókasafnið að gera mig líklegan til
afrega í lærdómi í dag.
Edda er eflaust á leiðinni út á flugvöll núna en hún ætlar að
skreppa í helgarferð til íslands til að sjá splúnku nýja
frænku.
Einmannaleg helgi framundan hjá mér, það þýðir þó ekki að ég láti
mér leiðast, það er einhvernveginn alltaf nóg að gera hjá mér.
Ég er búinn að vera að henda inn myndum alveg á fullu síðustu
dagana. Það eru alltaf einhverjar að bætast við, en ég er kominn
með "flicr" svo kallað, en það er myndasíða fyrir þá sem ekki eru
kunnugir.
Endilega kíkið á hana: http://www.flickr.com/photos/erkimyndir/
Linkurinn á síðunna er líka hérna hliðiná.
Ég er búinn að fá úr öllum 3 prófunum.
Electromagnetics (rafsegulfræði): 6
Mat2 (Línulegar og ólínulegar heildanlegar jöfnur) : 8
Elteknik (raforkufræði): 8
Ég er alveg sáttur, við þetta skor en alltaf hægt að gera
betur.
»
12.01.2007 20:10:25 / nybui
Veður:
Rigning og 8 gráðu hiti, alveg eins og það var í gær, alveg eins og
það verður á morgun.
Já ég vil var að fá sól, en það verður víst að bíða 60 daga.
Ég er einganveginn að koma sjálfum mér út úr jólarútínunni, en
flesta daga yfir jólin var vaknað um hádegi, farið í kaffiboð.
Eftir kaffiboðið gafst yfirleitt smá tími til afslöppunar áður en
farið var í kvöldmatarboð.
Nú er þetta allt alveg eins, fyrir utan matarboðin.
Ég fór til Randers síðustuhelgi í heimsókn til Lalla og Louisu.
Randers er bara eingin sveit eftir allt saman, kindasöngurinn í
Jóruselinu er meiri en í Randers. Það var fínnt að láta loks verða
að því að kíkja í heimsón til þeirra. Ég þakka þeim fyrir ótrúlega
gestrisni þeirra var yfir öllum væntingum.
Ég var að skrá mig í fög fyrir næstu önn í gær, það sem var valið
er eftir farandi:
-Analog Electronics
Þar sem stúterar verður almennar
og algengar rafmagnsrásir, ásamt aðferðum við reikning á rásum.
Magnararásir og síur.
-Signaler og lineære systemer i
kontinuert tid, enska heitið: Continuous Time Signals and Linear
Systems
Í þessum kúrs er nemednum kennt að
greina og vinna úr tíðnismerkjum og uppsetja stærfræðimódel fyrir
línuleg merki (signals).
-Fagprojekt
Þetta er verkefni yfir alla önnina
við fengum að velja úr 15 viðfangsefnum og ég valdi mér verkenfi
sem fjallar um svo kallaða Liquid Fuel Cell og sólarrafhlöðu,
Liquid Fuel Cell er raforkjugjafi sem miklar væntingar eru gerðar
til. Þetta er eitthvað sem ekki er komið á markaðinn enn og er enþá
í þróun, en þetta mun koma á markaðinn næstu árin.
Ég skil ykkur vel að hafa slept að lesa rununa hér að
ofan.
Stefnan er svo tekin á að taka aðeins meira til í litlu höllinni
okkar, og gera eitthvað ganglet næstu daga.
Þar til næst, "verið
úti".
»
17.12.2006 15:04:41 / nybui
Ég þakka allar afmælisóskir sem ég fékk.. ég saka þó ekki þá sem
muna ekki eftir afmælinu mínu, ég er ekki sá allra mynnugasti á
afmæli.
Það er alltaf gaman að vita hvað gamlir skólafélagar eru að gera af
sér þessa dagana. Sumir eru orðnir þreittir foreldrar sem hlaupa út
um allr á eftir krakkanum í joggingbuxunum með bumbuna lafandi.
Aðrir eru eitthvað að læra enþá en svo eru alltaf þessir sem skara
úr...
Guðni var reyndar ekki sá allra vinsælasti í seljaskóla,
strákgreyið, en hann náði þó þeim merka árángir að verða hvað mest
eftirtektarverður á síðastliðnu ári. Það byrtst meirar að seigja
mynd af honum á vef BBC fréttastofunar.
Fréttina er hægt að lesa hér.
Þess má svona til gamans geta að taminn hvalur drekti næstum
þjálfara sínum til 10 ára, það gleimdist að gefa hvalnum dekk til
að hjakkast á og losa, tjah köllum það bara spennu. Hvelurinn
reyndi í örvæntingu og greddugremju að fara uppá þjálfarann sinn,
eini gallin var að hvalurinn vegur um 5 tonn, og verð
stærðarmunurinn þjálfaranum næstum til dauða.
Munnlegt próf í Analog Electrinocs á mið. spurning um að taka það
munnlega...

»
02.12.2006 23:28:34 / nybui
Í vetur hafa
fjórtán verkefni fallið á borð kennarans. Aðeins er eitt
verkefni eftir sem mun verða slengt niður á borðið fyrir
framan nef kennarans.
Í tilefni áfangans ákvað ég að eiga einn dag fyrir
sjálfan mig með Eddu. Við fórum í jólagjafaleiðangur og afrekuðum
ágætis innkaup.
Kvöldið var tekið með rólegheitum og rauðvíni. Góð
tónlist og afslöppun og myndavélin var tekin upp, þar sem
eftirfarandi árangur kom:
Já, við erum nakin að ofan á þessum myndum. Eins og þú hafir ekki
fattað það. En hver veit ekki að nekt selur?
Við verðum til leigu milli jóla og nýárs, á
spottprís.
Hlakka til að sjá ykkur öll,
stórborgarbörn.
»
18.10.2006 20:35:17 / nybui

Það kom þá loksins inn mynd af íbúðinni okkar, við erum búinn að
vera á fullu í dag að gera fínnt. Við voum að fá okkur ljós og
gardínu, gardínurna eru fjólubláar og bleikar en liturinn á
þeimm sést ekki vel á þessari mynd, eins og má sjá á myndinni var
fengið sér pizzu eftir öll erfiðin.
Kveðja á klakan frá B&E
»
04.10.2006 21:00:37 / nybui

Þetta er logoið okker eddu, já við erum offisíjallí með
lógó...
»
11.09.2006 18:23:34 / nybui
Ég held ég
sleppi því að röfla um skólan, því það er eins og annað hvert
blogg sem maðu les þessa dagana sé um það hvað skólinn sé
erfiðu og að sumarið sé búið og
blablabla.....
Ég
sjálfur hef ekki mikla orku í að lesa leiðindi annara. Hef í nægu
að gera með mín egin. Þó svo að það sé svo sem ágætt að lesa
stundum um sjálfsvorkun annara bara svona til að átta sig á því hve
vel manni í raun líður.
Íbúðin fer öll
að kome heim og saman, ég á eflaust eftir að setja einhverjar
myndir af henni inná myndasíðuna mína en eina vandarmálið er að
tölvan mín er ekki virk þessa daganna.
Snirtipinnar,
steriotýpur og aðrir útlitsdýrkandi einstaklingar eru oft litnir
hornauga af öðrum ófagrari einstaklingum. Ég er búinn að setja
saman þá kenningu að ljótt fólk í þessum heimi fækkandi
fer.
Þannig að, ef þú
álítur þig sem ljóta manneskju þá ertu sennilega deyjandi
kynslóð.
Jæja
upp með bissurnar og byrjið að skjóta...
»
20.08.2006 10:30:42 / nybui
Nú styttist í það að við förum út. Ég ákað að taka mér blogg pásu í
sumar. Enda hafði ég fullt fang af ýmsu öðru. En um leið og skólinn
byrjar lofa ég að rasa hér út úr mér.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|