My creation ; My mind ; My life ; It's just me!
Beyglan
22.05.2007 08:06:41 / nybui

Prófatími

Ef til vill veita einhverjir að því að ég er í miðjum prófum, reyndar er fyrsta prófið hjá mér á morgun.
Prófalesturinn er búinn að vera einmannalegur að mestu leiti, en ég hef varðveitt mest megnis tíma míns í Kaupmannahafnar Bókasafninu.

Ég á til að leyfa andlitshárum mínum að vaxa yfir próftíma, þessi dagana reynir Edda að muna hvernig ég leit út ný rakaður.

 

Bjarni með skegg


Mynd af mér eins og ástandið er. 

Svo er bara spurning um hvar þetta endi, það er komin tillaga með myndarlegu og karlmanslegu yfirvara skeggi, tignalegu bartarnir voru líka flottir í fyrra. Hver man ekki eftir bartmann ;)

Held það sé kominn tími til að taka upp bók og fara að lesa, ef einhver er með góða hugmynd um lokaútgáfu á rakstur þá endilega kommenta hér að neðan. Planið er að fara allavegana 1 kvöld út eftir próf með flott (eða asnalegt) skegg. Ég man þó samt hve anslalega mér leið í fyrra með bartmanninn.

EddaK skrifaði
hökutopp ;) Held að það sé eins nálægt því að vera "órakaður" og hægt er ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.